Fara í efni

Háskólinn á Akureyri tekur forystu í umhverfismálum

Frá vinstri Jón Ómar Jóhannsson frá bifreiðastæðasjóði, Trausti Tryggvason umsjónarmaður hjá HA, Kri…
Frá vinstri Jón Ómar Jóhannsson frá bifreiðastæðasjóði, Trausti Tryggvason umsjónarmaður hjá HA, Kristín Ágústsdóttir forstöðumaður markaðs- og kynningarsviðs HA, Guðmundur Haukur Sigurðarson frá Vistorku, Ólafur Búi Gunnlaugsson forstöðumaður fasteigna og rekstrar hjá HA, Eyjólfur Guðmundsson rektor og Óskar Þór Vilhjálmsson tæknimaður.

Háskólinn á Akureyri tekur forystu í umhverfismálum

Háskólinn á Akureyri hefur á undanförnum árum verið leiðandi í innleiðingu á umhverfisvænum lausnum í sínum rekstri. Nýjasta verkefnið er að bjóða ívilnun á bílastæðum skólans þ.e. betra aðgengi og frítt rafmagn fyrir þá sem koma á umhverfisvænum bílum.

Græn bílastæði

Um er að ræða sex græn bílastæði. Tvö þeirra eru klukkustæði næst háskólabyggingunum en fjögur gefa fólki kost á að hlaða rafmagnsbílana sína á dagvinnutíma eða opnunartíma skólans. Í þessi stæði má einungis leggja bílum sem geta gengið fyrir hreinum innlendum orkugjöfum eins og metani eða rafmagni.

Í frétt á vef HA um vigslu grænu bílastæðanna segir m.a. "Í tilefni af vígslu stæðanna lagði Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri áherslu á að rafvæðing íslenska bílaflotans væri í raun aðgerð sem allir gætu tekið virkan þátt í.  Með því að veita starfsmönnum og nemendum aðgengi að hefðbundnu rafmagni þá geti eigendur rafbíla hlaðið bílana sér að kostnaðarlausu. Ekki er um hraðhleðslustöðvar að ræða heldur nota eigendur eigin búnað til að setja í samband við hefðbundna 16 ampera innstungu. Bílar nemenda og starfsfólks standa yfirleitt í nokkra klukkutíma á dag við skólann og því nýtist tíminn til hefðbundinnar hleðslu. Þetta er ódýr aðgerð fyrir skólann en er framlag HA til þess að auðvelda rafbílavæðingu og notkun annarra vistvænna orkugjafa."

 

Græn stæði Græn stæði  

 

Yfirlýsing um markmið í loftslagsmálum

Í lok síðasta árs og í kjölfar loftslagsráðstefnunnar í París í byrjun desember buðu FESTA og Reykjavíkurborg stofnunum og fyrirtækjum að skrifa undir sameiginlega yfirlýsingu um markmið í loftslagsmálum.  Lesa má meira um málið hér og hér

Í frétt um málið á vef HA segir m.a. "Háskólinn tekur virkan þátt í minnkun á losun gróðurhúsalofttegunda með minnkun á útblæstri úr bifreiðum. Starfsmenn Háskólans á Akureyri leigja bifreiðir í ferðum til Reykjavíkur og á hinum ýmsu stöðum um land allt. Nýjar reglur háskólans munu kveða á um að starfsmenn þurfi að leigja rafmagnsbíl ef vegalengdir þeirra verða 100 km eða styttri í hverri leigu, en mega líka kjósa sér rafmagnsbifreið sjálfir þó um lengri vegalengdir er að ræða. Með þessu móti er stuðlað að því að draga verulega úr fótspori Háskólans á Akureyri gagnvart losun gróðurhúsalofttegunda".

Flokkun á sorpi

HA innleiddi af eigin frumkvæði flokkunarkerfi á sorpi sem hefur hlotið mikla athygli en skólinn hefur flaggað Grænfánanum síðan 2013.

Flokkunarkerfi HA