Fara í efni

Viðtöl í The Big Fix

Gerry Hadden að taka upp hljóð við jarðhitasvæðið að Laugarlandi í Eyjafjarðarsveit
Gerry Hadden að taka upp hljóð við jarðhitasvæðið að Laugarlandi í Eyjafjarðarsveit

Viðtöl í The Big Fix

Útvarpsmaðurinn Gerry Hadden heimsótti Akureyri í sumar og tók nokkur viðtöl í tengslum við loftslagsmál bæjarins. Hægt er að hlusta á viðtölin í þætti hans með því að smella á hnappinn efst á vefsíðu þáttarins.

Gerry ákvað að koma í heimsókn í framhaldi af hlaðvarpi hans frá síðasta ári sem Vistorka tók þátt í.

Heimsókn hans og hlaðvarpið er enn eitt dæmi um áhuga erlendis frá á umhverfis- og loftslagsáherslum bæjarins. Vistorka hefur undanfarin ár tekið á móti fjölmörgum hópum, blaðamönnum og einstaklingum sem heimsækja bæinn sérstaklega til að kynna sér umhverfisáherslur sveitarfélagsins og markmið um kolefnishlutleysi.

Í þessum heimsóknum fá gestirnir fræðslu um starfssemina á sviði umhverfis- og loftslagsmála og helstu staðir jafnvel heimsóttir:

  • Starfssemi Vistorku, Fallorku og Norðurorku.
  • Umhverfis- og loftslagsstefna bæjarins.
  • Strætó sem gengur að stærstum hluta á metani og er gjaldfrír.
  • Söfnun á matarleifum og matarolíu af heimilum og veitingahúsum.
  • Söfnun og framleiðsla á metani af gömlu sorphaugunum á Glerárdal.
  • Endurvinnslustöðvum og endurnýtingarmöguleikum eins og hjá Rauða krossinum, Hertex og Fjölsmiðjunni.
  • Metanstöð - Norðurorku á Glerárdal
  • Lífdísilverksmiðja - Orkeyjar
  • Jarðgerðastöð - Moltu í Eyjafirði
  • Virkjanir - Fallorku á Glerárdal
  • Virkjanir - Fallorku í Grímsey (vindmyllur og sólarsellur)
  • Jarðhitasvæði - Norðurorku að Laugarlandi í Eyjafirði
  • Fráveitustöð - Norðurorku á Óseyri