Fara í efni

Íslenskt kaffi

Sigurður Ingi Friðleifsson
skrifar 13. febrúar 2023

Íslenskt kaffi

Innlent, ódýrara og betra

Ímyndum okkur að hér væri innlend kaffiframleiðsla sem myndi fullnægja kaffiþörfum okkar og væri líka ódýrari í stóra samhenginu. Ímyndum okkur líka að kaffið væri auk þess kraftmeira og hefði engin neikvæð heilsuáhrif, hvorki á svefn né nokkuð annað. Reyndar væri kaffið með þeim hætti að við þyrftum örlítið öðruvísi kaffivélar, sem væru hljóðlátari en kostuðu örlítið meira og væru aðeins lengur að hella upp á. Þessar kaffivélar myndu samt borga sig upp enda hver kaffibolli mun ódýrari en þeir erlendu. Já, það eru ekki margar vörur sem tikka í öll þrjú boxin eins og þetta ímyndaða kaffi þ.e. eru innlendar, ódýrari og betri. Ef þetta íslenska kaffi myndi raungerast myndu án efa nánast allir skipta yfir í það undir eins. Fáir myndu láta það trufla sig að kaffivélin sjálf væri örlítið dýrari og hægari enda borgar hún sig til lengri tíma litið, og kaffidrykkjan verður því hagkvæmari.

Íslenskt, já takk

Því miður er ekki útlit fyrir að þessir kaffidraumar rætist í bráð en hinsvegar er keimlíkt ævintýri í gangi núna sem kallast orkuskipti í samgöngum. Nú hafa opnast einstakir möguleikar á að skipta yfir í innlenda raforku sem er þrefalt orkunýtnari og borgar þannig upp þann aukakostnað sem felst í nýja farartækinu. Innlenda varan er þar af leiðindi bæði ódýrari og betri því hún veldur ekki heilsuspillandi mengun sem hefur verið yfir hættumörkum hvað eftir annað undanfarið. Þar að auki veldur hún ekki neikvæðum loftslagsbreytingum. Er ekki best að herða okkur allverulega í því að skipta yfir í innlent eða eigum við kannski bara að halda okkur við verra og dýrara erlent kaffi?

Höfundur er sviðsstjóri orkuskipta og loftsslagsmála hjá Orkustofnun og situr í stjórn Vistorku.

Greinin birtist fyrst á Vísi

Photo by Zarak Khan on Unsplash