Fara í efni

Kolefnishlutlaus Akureyri

Guðmundur Sigurðarson
skrifar 30. nóvember 2015

Kolefnishlutlaus Akureyri

Nú líður að Parísarfundi þar sem lokatilraun verður gerð til að komast að samkomulagi um að sporna við loftslagsbreytingum á Jörðinni. Hér er um alheimsverkefni að ræða sem hefur áhrif á okkur öll og er jafnframt á ábyrgð okkar allra.

Samfélagið okkar hér á Akureyri og nágrenni sem telur um 20.000 manns er lítið á heimsvísu en samt sem áður má finna hér flest sem einkennir milljónasamfélög svo sem sjúkrahús, framhaldsskóla, háskóla, orkuframleiðslu, iðnað, matvælavinnslu, ferðaþjónusta sem og ýmsar stofnanir. Ef hægt er að taka metnaðarfull skref í útblástursmálum á Akureyri, þá er engin afsökun að gera það ekki annarsstaðar.

Í hugmyndafræðinni um kolefnishlutlaust samfélag eru heimilin notuð sem miðpunktur. Ef ekkert gerist á heimilum er lítil von um árangur á öðrum sviðum. Til einföldunar má segja að á Vesturlöndum séu fjögur risakolefnisspor í rekstri heimila.

  1. A) vegna raforkunotkunar tækja
  2. B) vegna upphitunar húsnæðis
  3. C) vegna urðunar á lífrænu sorpi
  4. D) vegna samgangna.

Kolefnisspor A tengist raforkunotkun en þar njótum við þess, sem og aðrir landsmenn, að rafmagn á Íslandi kemur ekki úr ósjálfbærum kolefnislindum heldur úr vatnsafli og jarðvarma. Akureyringar fóru í mjög metnaðarfull orkuskipti á áttunda áratugnum þegar dýr hitaveita var lögð um bæinn eftir ítrekaðar og erfiðar boranir. Þetta voru kostnaðarsöm og erfið orkuskipti enda jarðhitaleitin talsvert flóknari en víða á Suðurlandi. Í dag njóta Eyfirðingar afraksturs þessarar djörfungar og búa við hræódýra og kolefnisfría upphitun og þurfa ekki að hafa áhyggjur af kolefnisspori B.

Hvað kolefnisspor C varðar þá er ekki sama hvernig lífrænn úrgangur er meðhöndlaður því að ef hann er einfaldlega urðaður þá myndi hvert kíló af slíkum úrgangi mynda 1,6 kg af gróðurhúsaloftegundum við rotnun á urðunarstað. Í Eyjafjarðarsveit er hinsvegar starfrækt verksmiðja sem tekur við lífrænum úrgangi og framleiðir jarðvegsbæti með miklum umhverfisávinningi. Fyrirtækið heitir Molta og er líklega ein vanmetnasta umhverfishetja landsins í baráttunni við útblástur gróðurhúsaloftegunda. Með stýrðu niðurbroti minnkar moltugerðin útblásturinn niður í 0,3 kg fyrir hvert kíló af úrgangi eða einn fimmta af því sem losnar við urðun. Molta tekur við lífrænum úrgangi úr öllum Eyjafirði. Það að moltugera lífrænan úrgang í stað þess að urða dregur úr losun gróðurhúsaloftegunda um 10-15 þúsund tonn á ári. Öll heimili eru þátttakendur í þessari aðgerð og til að setja þessar tölur í eitthvert samhengi þá eru þetta svipuð áhrif og ef 5.000 rafbílar væri keyptir á svæðið til að draga úr mengun. Bílar eru einmitt uppistaðan í kolefnisspori D og þar er verk að vinna.

Norðurorka hefur nú reist metanstöð, þar sem hægt er fá norðlenskt gas unnið úr lífrænum leifum gamla Glerárdalshaugsins. Metan er ekki eina eldsneytið sem unnið er í heimabyggð því á Akureyri er fyrirtækið Orkey sem vinnur lífdísil úr steikingarolíu og fituafskurði. Stefnt er á að virkja bæjarbúa til að safna notaðri matarolíu sem til fellur á heimilum til að auka framleiðsluna. Fyrstu hraðhleðslustöðvarnar eru svo væntanlegar þannig að ekkert mun vanta upp á innviði til að fara í orkuskipti í samgöngum. Helst viljum við þó flesta út úr bifreiðunum á lappir og hjól enda vegalengdir í lágmarki innanbæjar á Akureyri.

Í Eyjafirði hefur svo verið plantað ógrynni af trjám síðustu áratugi sem hjálpar mikið upp á kolefnisbókhaldið og ættu þau að hirða síðustu leifar kolefnis sem munu koma frá heimilum á næstu árum.

Akureyrarbær og Norðurorka stofnuðu fyrirtækið Vistorku ehf. í maí á þessu ári. Tilgangur félagsins er meðal annars að vinna að markmiðinu um kolefnishlutlaust bæjarfélag. Hvetjum við bæjarbúa og aðra landsmenn að fylgjast með framgangi mála á Facebook og vefsíðu félagsins.

Grein birtist fyrst á Vísi.